Sækja Flash Player til að skoða myndirnar.

Velkomin á vef Listatorgs

Öllum er opinn aðgangur að félaginu og leitar félagið sífellt að áhugasömu fólki sem hefur áhuga á að halda sýningar á verkum sínum, halda tónleika, námskeið eða vera með aðrar uppákomur í glæsilegum sal félagsins gegn mjög vægu gjaldi.  >> Nánar um félagið



Fréttir

 

Félagsvist spiluð í sal Listatorgs

Nú er okkar vinsæla félagsvist að hefjast aftur á nýju ári og verður fyrsta spilakvöldið þriðjudaginn 10. janúar kl. 20:00. - Og síðan 24. janúar. 7. 14. og 28. febrúar. 13. og 27. mars. 10. og 24. apríl og 8. og 22. maí.

Um leið og við viljum þakka hinum fjölmörgu sem spiluðu með okkur á síðasta ári viljum við bjóða nýja spilara velkomna að koma og eiga með okkur skemmtilegt spilakvöld.

Allir velkomnir.
Hlökkum til að sjá ykkur!

 

Jólamarkaður Listatorgs

Margir lögðu leið sína á hinn árlega og sívinsæla Jólamarkað handverksfólks í Sandgerði, sem var haldinn sunnudaginn 4. desember í sal Listatorgs.

Margir nýttu sér það og versluðu fallegar jólagjafir. Harðfiskur frá Birgi Júíussyni og fiskibollur frá Lionsklúbbi Sandgerðis runnu út eins og heitar lummur.


 

Jólakransagerð
Hressar konur komu saman í Listatorgi í kvöld hlaðnar dýrindis konfekti í þeim tilgangi að útbúa jólakransa.  Og afrakstur kvöldsins lét ekki á sér standa, glæsilegir kransar urður til undir leiðsögn Steinunnar Guðnadóttur.

 

Jólamarkaður á Listatorgi - FRESTAÐ
Það verður mikið líf og fjör í sal Listatorgs í  Sandgerði.
Laugardaginn 5.nóvember, þegar okkar árlegi jólamarkaður opnar
í aðeins einn dag.  Þá gefst gestum og gangandi tækifæri til að koma
og kaupa fallegt  handverk til  jólagjafa á frábæru verði.
Kræsingar,  jólailmur og skemmtileg dagskrá í Listatorgi frá klukkan 13-17 en aðeins þennan eina dag.

 

LEIRMÓTUN OG SKÖPUN

2ja kvölda námskeið í leirmótun hefst þriðjudaginn 18. október kl. 19.00,  seinna kvöldið verður miðvikudaginn 26. október.

 18. október: Mótun og sköpun.
 26. október: Glerungur
Verð:  1.000 kr 1 kg af leir.
Innifalið:  Leiðsögn, glerungur, 2 brennslur.
Staður:  Gamla Kaupfélagið.

Skráning og nánari upplýsingar í síma: 848-8812 (Erla)